laugardagur, 26. september 2020
þriðjudagur, 14. október 2014
Nýr titill bloggsins
Ég hef ákveðið að gefa blogginu mínu nýtt nafn. Framvegis mun það heita Tilraunir. Titillinn er þýðing á enska orðinu "essay". Ég mun gera tilraunir til að fjalla um ýmis mál. Í nýjum undirtitli kemur fram hvaða mál það eru.
- um allt milli himins og jarðar (undirdjúpin og himingeimurinn meðtalinn), aðallega menningarleg fyrirbæri, en helst ekki Tagespolitik, þ.e.a.s. argaþras.
laugardagur, 5. apríl 2014
Þematengd tónlist: Flugvélar
1. Fyrsta flugvélalagið mitt er Never Content með sænsku hljómsveitinni Air France. Það er ekkert í texta lagsins sem tengir það við flugvélar. Reyndar er textinn ekki sunginn nógu skýrt til að ég skilji hann. En meðlimir hljómsveitarinnar hafa af einhverjum ástæðum kosið að nefna hana eftir franska flugfélaginu Air France og í myndbandinu við lagið fylgjum við flugvél í flugtaki og flugi sem endar í nágrenni við Tvíburaturnana í New York, sem eins og allir vita hrundu eftir að flugvélar flugu inn í þá. Inniheldur lagið einhver leynileg skilaboð varðandi 9/11? Mér finnst þetta allavega mjög skemmtileg lag og hef hlustað á það oft því það lætur mér líða vel.
2. Stundum fá lög nýja merkingu af því að hljóma í ákveðnu samhengi í kvikmyndum. Eitt eftirminnilegasta dæmið um slíkt sem ég man eftir er flutningur laganna Blue Velvet með Bobby Vinton og In Dreams með Roy Orbison í kvikmynd David Lynch Blue Velvet. Inn í þetta flugvélaþema ætla ég að tilnefna ábreiðu Gary Jules af laginu Mad World, sem upphaflega var flutt af hljómsveitinni Tears For Fears. Þessi ábreiða var spiluð í kvikmyndinni Donnie Darko með Jake Gyllenhall í aðalhlutverki. Í laginu syngur Gary Jules: „The dreams in which I´m dying are the best I´ve ever had". En kvikmyndin hefst einmitt á því að persóna Jake Gyllenhall dreymir að þotuhreyfill lendi ofan á húsinu hans. Vegna þessa draums og risastóru kanínunnar sem ofsækir hann er hann talinn geðveikur og þarf að fara til sálfræðings. Kvikmyndin endar svo á því að flugvél hrapar og þotuhreyfill lendir ofan á húsinu hans. Já, „it´s a mad world."
3. Engin umræða um flugvélatengd lög væri fullkomnuð án þess að nefna one hit wonder hljómsveitarinnar The Motors „Airport". Í þessu hressa popplagi er textagerðin afar frumleg. Söngvarinn fær útrás fyrir gremju sína vegna kærustunnar sem fór frá honum með því að saka flugvöllinn um að hafa stolið henni frá honum. Hann hefur fylgt henni á flugstöðina og heyrir í vélinni sem mun taka ástina hans frá honum. „I hear the plane is ready by the gateway to take my love away". Svo þegar flugvélin er farinn situr söngvarinn eftir með brostið hjarta og endurtekur í sífellu hið nístandi sára viðlag. „Airport! / Airport, you´ve got a smiling face, / you took the one I love so far away. / Fly her away. / Fly her away. / Airport!"

miðvikudagur, 8. ágúst 2012
Langhlaup eða spretthlaup?
Í tilefni af ólympíleikunum í London langar mig til að leggja lauflétta tilvistarspurningu fyrir lesendur.
Oft er sagt að lífið sé langhlaup. Þessu heldur til að mynda Lýðheilsustöð fram af mikilli festu.
En hvernig getur maður verið viss um að lífið sé ekki spretthlaup og maður sjálfur bara að skokka í rólegheitunum meðan hinir eru löngu komnir í mark?
| Jamaíkabúinn Usain Bolt sigraði í 100m spretthlaupi á Olympíuleikunum í London á tímanum 9,63 sekúndur. |
Hvað er ykkar skoðun?
Menntavegurinn
þriðjudagur, 7. ágúst 2012
þýsk íslenska
Á Íslandi reka yfirvöld málverndarstefnu af mikilli festu. Íslenskan skal vera hrein og því hika foreldrar og kennarar ekki við að skamma unglinga fyrir enskuslettur. Unglingum finnst sletturnar svalar (enska: cool), en hinir fullorðnu geta af reynslu sinni bent á að dönskusletturnar sem tíðkuðust fyrir hundrað árum þykja ekki lengur fínar.
En það er ekki sama úr hvaða máli er slett. Mér finnst ógeðslega geil að sletta úr þýsku. Þar bjó ég seinustu fjögur ár. Og núna skrifa ég mastersritgerð, sem ég á að skila á þýsku til Humboldt Universität zu Berlin. En ég get ekki, eða vill ekki hugsa allt frá grunni á þýsku. Hugsun mín fer að mestu fram á íslensku, en ég er farinn að þróa hjá mér einhverskonar stíl sem hentar vel til að þýða á þýsku. Hérna kemur dæmi:
„Gott dæmi um þetta eru viðbrögðin við bréfi eiginmannsins, „mit verzerrtem Gesicht im Bett aufgerichtet“(310), og hvernig hún í sama bréfi meðfylgjandi ljósmynd af syninum bregst við, „Da reißt Frau Vogler das Photo mittendurch“(310). Þannig erfahren wir um skoðanir hennar á eiginmanni og syni, sem koma lítið við sögu í eigin persónu.“
Ég hef mjög gaman af þessum stíl. Supergeil.

mánudagur, 6. ágúst 2012
Tónlist við mastersritgerð
Um þessar mundir sit ég stíft við að klára mastersritgerðina mína. Ég hef komið mér fyrir í kjallaranum hjá foreldrum mínum og skrifa af miklum móð til að geta skilað af mér fyrir deadline.
Til að stytta mér stundir hlusta ég mikið á tónlist. Ég vill helst ekki hlusta á sungna tónlist meðan ég skrifa, því mér finnst texti söngvarans trufla mig. Í heilan mánuð hlustaði ég því aftur og aftur í gegnum sex geisladiska sett af instrumental klassískri tónlist sem heitir Smooth Classics.
Svo fór ég að verða brjálaður af að hlusta endalaust á einhverjar fiðlur. Þá fór ég í gegnum geisladiskasafnið í gamla herberginu mínu uppi. Síðan þá hef ég hlustað aftur og aftur á þessar plötur. Í fyrsta lagi Britpop-upprifjun.
Blur - The best of
Oasis - Whats the Story Morning Glory
Svo Kántrísveifla.
Bob Dylan - Nashville Skyline
Þetta er að einhverju leyti asnaleg plata, þar sem Bob syngur kántrí með kjánalegri rödd. en rosalega skemmtileg og ég get hlustað á hana ótrúlega oft.
Og svo þegar ég er í dramatísku stuði fyrir showdown. Showdown þar sem ég þarf að klára ákveðinn kafla þá hlusta ég á
Movie Classics of Ennio Morricone and Hugo Montenegro

mánudagur, 23. júlí 2012
Varið ykkur á sölumönnum snákaolíu
Að gefnu tilefni ætla ég að vara við sölumönnum snákaolíu. Áður en ákvörðun er tekinn ætti alltaf að kynna sér vandlega innihald flöskunnar og meta hvort það er peningana virði.
Hérna er leikið myndband, sem sýnir dæmigerða snákaolíusölumenn að störfum.

sunnudagur, 22. júlí 2012
Borgarljóð: Borg óttans
Borg óttans,
spítali geðlyfjanna,
svefnherbergi þunglyndisins,
líkamsræktarsalur sjálfspíningarinnar,
gangstétt ferðalangsins,
akvegur bifreiðastjórans,
bílagata hjólreiðamannsins,
morgunnverður hómópatans,
vinahópur fjárglæframannsins,
stefnuleysi togaraskipstjórans,
hráolíuvinnsla arabaþjóða,
gjaldmiðill tortímingarinnar
í heimsálfu óttans,
húsnæðislán fjölskylduföðurins,
efnahagsreikningur viðskiptabankans,
stjórnmálaflokkur stóreignamannsins,
hagsmunamál fjármagnseigandans,
hlekkir hins eignalausa,
verðbólga, verðtrygging og gengisfall.
Borgarljóð: Í Vesturbænum
ÉG HITTI GAMLAN MANN,
HÁR HANS VAR SVART.
HANN KOM HLAUPANDI TIL MÍN
Í GLÆNÝJUM ADIDAS SKÓM.
HANN HRÆKTI Í HÁRIÐ MITT
OG HRIFSAÐI AF MÉR HANDTÖSKUNA.
HANN ÖSKRAÐI:
NIÐUR MEÐ KERFIÐ!
HELVÍTIS FOKKING FOKK!
föstudagur, 20. júlí 2012
Gamlingjaréttindi
Það er talað um að vernda rétt einstaklinga til að vera börn og njóta barnæskunnar. Þessi metnaður kemur meðal annars fram í barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og í barnabókamenningu
Hvað um hitt að vernda rétt einstaklingsins til að vera gamlingjar og njóta ellinnar. Er til hliðstæður gamlingjasáttmáli sameinuðu þjóðana og gamlingjabókmenntir?
Er þetta tvennt yfir höfuð hliðstætt?
föstudagur, 29. júní 2012
Óvissutímar
Menn tala um að við lifum á tímum mikillar óvissu. Um hvaða hluti ríkir óvissa?
1. Hver verður kosinn forseti? Ólafur eða Þóra?
2. Hvernig verður dæmt í Icesave málinu? Munu Íslendingar þurfa að borga „skuldir óreiðumanna“?
3. Hvort munu Íslendingar samþykkja eða hafna nýju stjórnarskránni frá stjórnlagaráði?
4. Hvort segja fleiri já eða nei í kosningum um aðild að ESB?
Um þessa hluti ríkir bullandi óvissa og því verður spennandi að fylgjast með þjóðmálunum á næstu mánuðum og árum.
Framtíðin er í eðli sínu óviss. Mönnum reynist erfitt að spá um hluti, sérstaklega um framtíðina. Því má segja að það ríki óvissa um allskonar hluti.
5. Munu Íslendingar glata fullveldi sínu?
6. Munu Íslendingar hætta að nota íslenska krónu?
7. Munu Íslendingar hætta að tala íslensku?
8. Mun einhver búa á Íslandi eftir hundrað ár?
9. Munu barnabörnin verða mjög fúl ef við virkjum of mörg fljót?
10. Munu börn, barnabörn, barnabarnabörn lifa hamingjusömu lífi?
Endalaust er hægt að velta fyrir sér óvissum hlutum, því býð ég grandvörum lesendum bloggsins að bæta inn fleiri óvissuþáttum, sem þeir missa svefn yfir.

miðvikudagur, 25. apríl 2012
Er lífið - og jafnvel sjálft Landsdómsmálið - Leikhús Fáránleikans?
![]() |
| Fáránlegur ljóðaupplestur dadaistans Hug Ball |
Ég vissi ekki af þessum rannsóknarniðurstöðum Sókratesar þegar ég var tvítugur og skráði mig í háskólanám í bókmenntafræði. Ég, eins og allt annað ungt fólk, vildi vita allt og skilja allt. En þar sem tíminn er naumt skammtaður og lífið skilyrt af ýmsum óþægilegum aðstæðum þurfti ég að ganga strategískt til verksins. Á endanum veðjaði ég á skáldin. Ég ákvað að beina spurningum mínum til þeirra.
Mörgum árum síðar sannfærist ég meir og meir um niðurstöðu Sókratesar. Skáldin vita ekkert í sinn haus. Og ég er í auknum mæli farinn að beina spurningum mínum til hagfræðingana, en inní mér býr nagandi efi um hvort þeir viti eitthvað frekar.
Í millitíðinni er þó hægt að slá um sig með tilvitnunum. Í tengslum við Landsdómsmálið finnst mér viðeigandi að vitna í enska 18. aldar höfundinn Henry Fielding, sem skrifaði eftirfarandi í skáldsöguna Tom Jones:
Life most exactly resembles the stage, since it is often the same person who represents the villain and the heroe.
![]() |
| Skúrkur |
For though the facts themselves may appear, yet so different will be the motives, circumstances, and consequences, when a man tells his own story, and when his enemy tells it, that we scarce can recognize the facts to be one and the same.
![]() |
| eða hetja? |
Ef maður les mikið af bloggum, eins og ég geri, þá rekst maður oft á þá kenningu að allskonar uppákomur, sem fjölmiðlar segja frá, séu bara leikrit. Stundum tilgreina menn hver sé höfundur verksins og hverjir leiki hlutverkin. Til dæmis skrifaði Guðni Ágústsson um það að stjórnmálaflokkurinn Björt Framtíð væri leikrit, sem Össur Skarphéðinsson hefði samið. Og aðrir hafa sagt að Guðni ásamt Mikka Mús, hafi leikið aðalhlutverkið í nýlegu leikriti eftir Ólaf Ragnar Grímsson, sem hét „Áskorun til Forseta Íslands”. Svo halda því margir fram að leikhúsmaðurinn Hádegismóri sé helsti strengjabrúðumeistari landsins. Oft greina menn á milli hvort eitthvað sé tragedía eða leikhús fáránleikans.
Einu sinni sat ég á knæpu í Berlín og drakk bjór með þremur doktorsnemum í heimspeki. Þá ákvað ég að nýta mér tækifærið og leggja undir þá þessa leikhúskenningu um veruleikann, sem Shakespeare orðaði þannig:
All the world's a stage,
And all the men and women merely players;
They have their exits and their entrances,
And one man in his time plays many parts,
His acts being seven ages.
Þeir höfðu allir hugsað um þetta djúpt og lengi, en komist að þeirri niðurstöðu að þessi myndhverfing stæðist ekki og næði ekki að fanga veruleikann. En ég man ekki rökin, sem þeir færðu fyrir því, og þess vegna veldur kenningin mér áfram miklum heilabrotum. Ég verð að viðurkenna að ég kemst ekki að neinni niðurstöðu í málinu.
sunnudagur, 4. mars 2012
Af valdarónum, ritsóðum og athugasemdaskúmum
Þegar ég var 16 ára fór ég á borgarbókasafnið og tók út öll fjögur bindin af Stríði og friði eftir Tolstoy, því einhver hafði sagt að þetta væri ein besta skáldsaga í heimi. Breið þjóðfélagsrýni með yfir 500 persónum sem nær utan um allt rússneskt samfélag frá bændum til aristókrata í Rússlandi á tíma Napoleonstríðanna. Ég kláraði aldrei söguna. Eftir hundruðir blaðsíðna fannst mér alltaf að sagan væri samt bara að byrja og það væri endalaust eftir.
Svona líður mér alltaf í dag þegar ég internetsörfa um bloggheima og annað stöff á veraldarvefnum. Bloggið og facebook og allt þetta dót hefur hrint af stað gígantísku samfélagslegu skrifprojekti, þar sem allskonar fólk kveður sér hljóðs og segir frá einhverju eða gerir athugasemdir og svo framvegis. Niðuarstaðan er nánast óendanlega breið og löng samfélagsleg skáldsaga, sem maður getur lesið endalaust og manni finnst alltaf sagan vera rétt að byrja og endalaust eftir. Þó hef ég ekki enn lagt frá mér bókina. Í raun er ég gagntekinn af þessu lesefni og sogast inn þennan heim á nánast hverjum einasta degi.
Ég ætla hér að fjalla um nokkrar af mínum uppáhaldstýpum sem oft skjóta upp kollinum í þessari breiðu samfélagsskáldsögu.
1. Athugasemdaskúmar
Að mínu mati eru athugasemdaskúmarnir langskemmtilegustu fígúrurnar á alnetinu. Ég get varla hamið mig í hvert sinn sem ég les pistil eða bloggfærslu að skrolla niður síðuna til að sjá hvort einhver úrillur öfgamaður sé búinn að drita í athugasemdakerfið. Best finnst mér þegar skúmarnir tjá sig með sérkennilegri stafsetningu, eins og að SKRIFA ALLT Í HÁSTÖFUM til að tjá sérstaklega sterka reiði, eða eða að setja þrjá punkta ... í hvert sinn sem skrifarinn hefur stoppað til að anda.
2. Ritsóðar
Eftir áratuga flugsamgöngur til og frá Íslandi hefur það loks komist úr týsku að vera flugdólgur. Í staðinn hafa internetdólgar snúið sér að dónaskap í tölvutæku formi. Það eru þeir sem hafa stofnað blogg að því er virðist eingöngu til að skíta yfir fólk. Stundum kalla menn þessa týpu sóðabloggara.
3. Mannorðsmorðingjar
Það eru þeir kallaðir sem skrifa eitthvað neikvætt um fræga eða ríka einstaklinga. Þeir flokkast sem slíkir sama hvort það sem þeir segja er satt eða logið. Kirkjunnar menn stilla sér oft upp í einskonar heilagt stríð gegn þessum týpum.
4. Lýðskrumarar
Stundum líka kallaðir upphlaupsmenn. Upphlaupsmenn hvetja annað hvort til upphlaups í Þingsölum, eða á torginu fyrir utan þinghúsið. Ef einhver valdaróni segir eitthvað gott um útlendinga þá bregst lýðskrumarinn við með svika- og landráðabrigslum.
5. Valdarónar
Það mætti færa rök fyrir því að valdarónar séu aðalpersónurnar í þessari breiðu samfélagslegu skáldsögu. Því nánast allt sem er skrifað og kommentað snýst með einum eða öðrum hætti um fígúrur, sem flokkast í þennan hóp. Valdarónar eru fíflin sem stjórna öllu. Þetta eru dusilmenni og gungur og druslur, sem með útpældum samsærum hafa sölsað undir sig öll völd í samfélaginu. Og á meðan þessir einstaklingar skíta í brók þá sveima athugasemdaskúmarnir og drulla yfir þá. Þannig skapast helsta dramatíkin í þessum heimi.

þriðjudagur, 7. febrúar 2012
Hefur heimurinn einhverntima verid verri? Hversu miklar hörmungar eru framundan?
Fidel Castro segir ad heimurinn hafi aldrei verid verri og ser fram a miklar hörmungar. Thetta tilkynnti hinn reynslumikli landsfadir a bladamannafundi i tilefni af utkomu aevisögu hans. eyjan.is segir fra.
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, aetlar ad halda afram ad vera bjartsynn.
„Ég ætla bara að halda áfram að vera bjartsýnn“. DV segir fra.

miðvikudagur, 25. janúar 2012
Nokkrir mögulegir forsetar
A.
Bidjum Dani afsökunar.
Margreti Þórhildi sem thjodhöfdingja 2012!
B.
Kjosum Dorrit 2012!
C.
Palla a Bessastadi
Stanslaust stud 2012
D.
Gefumst ekki upp!
Fridur 2012
Her med hef eg sagt allt sem eg aetla ad segja um forsetakosningar a Islandi 2012.

laugardagur, 21. janúar 2012
Frelsum-Geir-Samtökin
Úr Stjórnarskrá Íslands frá 1944
14. gr. Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ráðherraábyrgð er ákveðin með lögum. Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál.
Hvaða lógík liggur á bakvið það að vera bæði á móti þessari núverandi stjórnarskrá og því að fá nýja stjórnarskrá frá Stjórnlagaráði?
Ég spyr mig til dæmis um hvaða lógík lá að baki þegar biskpu íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, kallaði það í ræðu "þjóðarsmán" að Alþingi kæri Geir Haarde fyrir Landsdómi. Meinar hann að það sé "þjóðarsmán" að fylgja því sem stendur í stjórnarskránni frá 1944?
Og Bjarni Benediktsson, sem er bæði á móti Landsdómsmálinu og á móti nýrri stjórnarskrá. Hvernig leggur hann saman tvo og tvo?

Ég er ekki svo hrifinn af Frelsum-Geir-Samtökunum. Ég skil ekki alltaf íslensk stjórnmál. Mér finnst að minnsta kosti samtökin um að frelsa Bradley Manning miklu mikilvægari. Þeim unga manni er gefið að sök að hafa sent skjöl um stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan til Wikileaks. Honum hefur núna verið haldið í einangrun í meira en ár án nokkura réttarhalda.
Í þessu samhengi spyr maður sig. Hvort er meiri glæpur að segja frá, eins og Manning er sakaður um, eða þegja, eins og Geir er sakaður um?
fimmtudagur, 1. desember 2011
Lacan í héraðsdómi
Héraðsdómur hefur nú tvisvar sinnum dæmt sannleikann í hinu svokallaða Aratúnsmáli „dauðan og ómerkan". Ef hann er samkvæmur sjálfum sér í hinum 6 málunum sem bíða úrskurðar, þá munu fleiri sannar staðhæfingar verða dæmdar "dauðar og ómerkar".
(Innskot: Ég get ekki betur séð en að dómari héraðsdómari dæmi það sem meiðyrði að segja að einhver sé með "langan brotaferil" ef hann hefur bara tvisvar gerst sekur um líkamsárás. Kannski lítur hann þannig á málið að eitt brot sé bara brot, tvö brot eru brotaferill, og þrjú brot eða fleiri eru langur brotaferill. Ég verð að læra meiri lögfræði. Kannski er aðalbrotið að það megi ekki segja opinberlega frá því ef einhver hefur hlotið dóma.)
Mótmæli í Aratúni
Ég ætla að segja sem minnst um deiluefnið, eða ég gæti sjálfur átt von á kæru. En það sem kom mér á óvart er að íslensk lög refsi mönnum fyrir að segja sannleikann. Mönnum getur sviðið undan sannleikanum, en ég taldi þa grunninn í tjáningarfrelsinu að mega segja satt. Ég skil vel að ósannindi séu dæmd "dauð og ómerk". En ég hélt að maður mætti alltaf segja satt og rétt frá. En það var af því að ég þekkti ekki lögin í mínu heimalandi.
Hvað þýðir "ómerkur"?
Íslensk Orðabók, Mörður Árnason (ritstj.), (Rvk: Edda, 2007) segir:
ómerkur = lítilsverður, lítt merkilegur, eða (um orð) marklaus.
Sumir segja að Yoda sé Lacan
Til að enda þetta á léttari nótum og reyna hljóma gáfulega og segja nafn meistararns Jacques Lacan. Þá er reyndar í samræmi við kenningar Lacan að merkingin skautar marklaust undan táknmyndinni.(1) Fyrst Lacan segir líka að sannleikurinn sé marklaus þá er það kannski ekki vitleysa.
1. (Jacques Lacan, "The Insistence of the Letter in the Unconcious", í Modern Criticism and Theory, 2nd ed., David Lodge (ed.), (Harlow: Pearson Education, 2000), bls. 62-87.)

Ritsóðar og internetdónar
Mikið er talað um hvað internetdónar séu leiðinlegir. Sumir ganga svo langt ad segja að ritsóðar í kommentakerfum höggvi að innviðum samfélagsins. Aðrir segja að blaðamenn og sjónvarpsfréttamenn séu jafn miklir eða meiri mannorðsmorðingjar en bloggararnir. Sjá til dæmis hér um predikun biskupsins þar sem hann varar við sleggjudó´mum, upphrópunum, ærumeiðingum og mannorðsmorðum.
Eitt er víst: það er enginn ástæða til að vera fífl.
Orð geta sært eins og eftirfarandi mynd sýnir grafískt.
Á íslandi þykir fínt að vera góður penni og rökfastur. Oft reyna menn að láta til sín taka í umræðunni og skjóta föstum skotum að samferðamönnum sínum. Ef maður vill gagnrýna menn og málefni, en forðast það að vera fífl þarf að vanda sig. Bæði er erfitt að segja eitthvað að viti, og svo er líka skaðlegt fyrir manns eigin málstað að taka of stórt uppí sig.
Hérna er góð grein eftir Ástrala að nafni Stuart Rees, sem skrifar um óvandaða gagnrýni ýmissra ritsóða þar í landi þegar tilkynnt var að Noam Chomsky fengi hið svokallaða Sydney Peace Prize. http://www.abc.net.au/unleashed/2821144.html
Mér langaði eiginlega bara að blogga eftir að hafa lesið þetta. Margir Íslendingar gætu lært af þessu.
En ég er svo reiður og langar til að ÖSKRA!!!

miðvikudagur, 16. nóvember 2011
Osynilega höndin i staerra samhengi / Univisible hand in the larger context
Eg trui a hina osynilegu hönd. Hun er fest vid hinn osynilega likama. Osynilegi hausinn og osynilega typpid eru einnig hlutar thessa osynilega manns.
Osynilega höndin. Er thad ekki thad sama og menn kalla stundum mugheimsku. eda a ensku Swarm-intelligence. Storir hopar af folki hreyfa sig i kringum midjuna, fordast ad klessa a adra og hreyfa sig i sömu att og allir i kring.
Osynilega höndin er hluti af staerra samhengi, nefnilega hinum osynilega hop af folki.
//
I believe in the invisible hand. It is attached to the invisible body. Invisible invisible head and penis are also part of this invisible man.
The Invisible hand. Is it not the same as they sometimes call swarm intelligence. or in Icelandic mugheimska-. Large groups of people always move around the center, avoid colliding with each other and move in the same general direction as everybody around them.
The Invisible hand is part of a larger phenomena, namely, the invisible group of people.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)